Hyggst trufla hvalveiðar á Íslandi í sumar

Ritstjórn mbl.is

2025-03-17 23:21

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Aðgerðarsinninn og hvalavinurinn Paul Watson segist vera með áætlanir um trufla hvalveiðar á Íslandi í júní. Ekki er langt síðan hann olli seinast usla hér á landi.

Okkar áframhaldandi herferð snýr því stöðva ólöglegar hvalveiðar í sumar. Við munum trufla íslenskar hvalveiðar. Það verður í byrjun júní, sagði hinn 74 ára Watson í samtali við fréttuaveituna Kyodo news á mánudag, því er Japan Times greinir frá.

Watson, sem er 74 ára gamall, var handtekinn á Grænlandi í haust vegna handtökuskipunar í Japan frá árinu 2012. Þar var hann sakaður um skemmdarverk á hvalveiðiskipi á Suðurskautinu árið 2010 og fyrir slasa hvalveiðimann.

Danir höfnuðu þó framsalsbeiðni Japana og aðgerðarsinnin gengur laus eftir fimm mánaða gæsluvarðhald á dönsku yfirráðasvæði. Hann býr í Frakklandi sem heiðursborgari í París. Kveðst Watson hafa fengið fjölda bréfa meðan hann var í varðhaldi.

Hefur áður valdið usla á Íslandi

Íslendingar þekkja Watson vel enda hefur hann áður skipulagt aðgerðir gegn hvalveiðum á Íslandi ásamt sjálfboðaliðum á vegum umhverfisverndarsamtakanna Sea Shepherd.

Árið 1986 sökktu útsendarar á vegum samtakanna til mynda tveimur hvalveiðibátum í Reykjavíkurhöfn með því opna botnlokur þeirra. Einnig brutust þeir inn í Hvalstöðina í Hvalfirði og unnu skemmdir á tækjum og búnaði þar. Sea Shepherd lýsti ábyrgðinni á hendur sér.

Árið 2019 kom Watson síðan aftur til landsins í þeim tilgangi stöðva hrefnuveiðar. Ekki stóð hins vegar til fara á hrefnuveiðar það árið og hafði hann því ekki erindi sem erfiði.

Læstu sig í möstrum

Árið 2022 stofnaði hann hvalverndarsamtök sem hann nefnid í höfuð á sjálfum sér, The Captain Paul Watson Foundation, og hafa þau einnig truflað hvalveiðar hér á landi.

Watson-samtökin vöktu mikla athygli í byrjun september 2023, þegar tvær konur á þeirra vegum læstu sig í möstrum hvalveiðiskipanna Hvals 8 og Hvals 9.

Konurnar tvær, Anahita Babaei og Elissa Biou, voru í möstrunum í um tvo daga.

Fylgist grannt með japönskum skipum

Aðeins þrjár þjóðir stunda hvalveiðar til viðskipta; Íslendingar, Norðmenn og Japanir. Watson segir samtökin fylgjast grannt með hvalveiðum í Japan

Ef Japanir snúa aftur á Suður-Íshaf í haust munum við vera þar til mæta þeim, segir hann við japanska miðilinn.

Umdeilt hvalveiðileyfi

Í desember gaf Bjarni Benediktsson, þá fráfarandi forsætisráðherra og starfandi matvælaráðherra, út leyfi til veiða á 201 langreyði til Hvals hf. auk leyfis til veiða á 217 hrefnum til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf.

Leyfið er í gildi til fimm ára en endurnýjast sjálfkrafa.

Ákvörðun Bjarna var umdeild, 51% landsmanna sögðust ósáttir með ákvörðunina samkvæmt könun Maskínu. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, hefur einnig sagt lög um hvalveiðar á Íslandi séu úrelt og krefjist endurskoðunar.

Nafnalisti

  • Anahita Babaeimótmælandi
  • Bjarni Benediktssonformaður SJálfstæðisflokksins
  • Elissa Bioumótmælandi
  • Halldór Sigurðssonforstjóri Ríkiskaupa
  • Japan Timesdagblað
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Kyodojapönsk fréttastofa
  • Paul Watsonstofnandi umhverfisverndarsamtakanna Sea Shepherd
  • Sea Shepherdhvalfriðunarsamtak
  • The Captain Paul Watson Foundation

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 464 eindir í 30 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 29 málsgreinar eða 96,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,71.