Sæki samantekt...
Framlag Íslands í Eurovision í ár — lagið Róa með bræðrunum í Væb — er fyrsta lagið sem flutt verður á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision sem fram fer í svissnesku borginni Basel í maí.
Frá þessu var greint fyrir í helgi, en áður hafði verið greint frá því að framlag Íslands yrði í fyrri hluta fyrra undanúrslitakvöldsins.
Auk framlags Íslands verður framlag Póllands, Slóveníu, Eistlands, Úkraínu, Svíþjóðar, Portúgals, Noregs, Belgíu, Aserbaídsjans, San Marínó, Albaníu, Hollands, Króatíu og Kýpur flutt á fyrra undanúrslitakvöldinu. Tíu af lögunum fimmtán mun komast áfram á úrslitakvöld keppninnar.
Auk þess verða framlög Spánar, Ítalíu og Sviss einnig flutt á sviðinu á fyrra undanúrslitakvöldinu, en þau eru í hópi þeirra laga sem eiga sjálfkrafa rétt til þátttöku á úrslitakvöldinu — Spánn og Ítalía í krafti fjárframlaga til EBU, en Sviss þar sem landið bar sigur úr býtum í keppninni í fyrra.
Fyrra undanúrslitakvöld Eurovision fer fram þriðjudaginn 13. maí. Seinna undanúrslitakvöldið fer svo fram fimmtudaginn 15. maí og sjálft úrslitakvöldið laugardaginn 17. maí. Keppnin fer fram í St Jakobshalle í Basel. Alls taka 37 lönd þátt í keppninni í ár.
Nafnalisti
- EBUSamband evrópskra sjónvarpsstöðva
- Framlag Íslandshluti af því framlagi sem forsætisráðherra tilkynnti um í tengslum við leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 199 eindir í 9 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,66.