Fundur um öryggi ferðafólksá Hornströndum

Ritstjórn Bæjarins besta

2025-04-02 14:08

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Í gær komu saman á Ísafirði fjölmargir aðilar til ræða öryggi ferðafólks sem árlega fer til Hornstranda.

Á fundinum voru rædd þau tilvik sem hafa komið upp á liðnum árum, sem sum hafa verið leyst af landvörðum og ferðaþjónustuaðilum. En sum tilvikin hafa kallað á aðkomu björgunarsveita, lögreglu, sjúkraflutninga og annarra viðbragðsaðila.

Stopult eða ekkert símasamband er víða á svæðinu. Landslagið er ekki alltaf auðvelt yfirferðar og íslensk veðrátta getur sett ferðaáætlanir úr skorðum.

Þá er ekki auðvelt fyrir viðbragðsaðila komast inn á svæðið, ef á þarf halda, nema sjóleiðis eða með þyrlum.

Margt var rætt á fundinum og skipst á hugmyndum leiðum til tryggja betur öryggi ferðafólks og hvernig brugðist verði við ef út af ber.

Fundarfólk var sammála um allir aðilar sem þessum verkefnum koma hafa mikinn vilja til gera vel og er ætlunin hópurinn muni funda tvisvar á ári, til stilla betur saman strengina.

Það voru Náttúruverndarstofnun og lögreglan á Vestfjörðum sem stóðu fyrir fundinum.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 182 eindir í 9 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 100,0%.
    • Margræðnistuðull var 1,51.