Sæki samantekt...
Vonir um að finna fleiri á lífi í rústunum í Mandalay eftir jarðskjálftann öfluga sem reið yfir í Mjanmar og nágrannaríkið Taílandi á föstudaginn hafa dvínað.
Tala látinna í Mjanmar er komin í 1.700 og er fjölmargra saknað en stærsti skjálftinn mældist 7,7 að stærð. Þá er 18 látnir í Taílandi og 73 byggingaverkamanna er saknað eftir að 30 hæða bygging sem var í smíðum hrundi.
Margir íbúar Mandalay, höfuðborgar Mjanmar, eyddu þriðju nóttinni í röð undir berum himni en aðstæður til leitarstarfa eru afar erfiðar sökum hita en reiknað er með að hitinn fari upp í 40 stig í dag.
Skjálftarnir ollu gríðarlegri eyðileggingu í Mandalay þar sem byggingar og brýr hrundu og margar götur fóru hreinlega í sundur. Fyrir skjálftann á föstudag voru um 3,5 milljónir manna á flótta vegna borgarastríðsins sem geisað hefur í landinu og ríkir mikil neyð í þessu fátæka ríki.
Í Bangkok, höfuðborg Taílands, stendur enn yfir leit af 73 byggingarverkamönnum sem er saknað eftir að 30 hæða skýjakljúfur hrundi eins og spilaborg. 18 létust og 33 voru fluttir slasaðir á sjúkrahús. Leitarhundar og drónar hafa verið notaðir til að leita í rústunum sem er nálægt Chatuchak markaðinum sem er vinsæll ferðamannastaður.
Nafnalisti
- Mandalayborg
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 209 eindir í 9 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 88,9%.
- Margræðnistuðull var 1,75.