Viðskipti

Lakari afkoma útgerða skilar minni skatttekjum

Ritstjórn mbl.is

2025-03-29 10:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélags hf., telur ljóst hækkun veiðigjalda muni koma niður á fjárfestingu fyrirtækja í sjávarútvegi. Afleiðing þess kunni verða lakari samkeppnisskilyrði, sem leiði af sér aukinn útflutning af óunnum fiski sem skili minni tekjum af sjávarútvegi til ríkis og sveitarfélaga.

Þetta sagði hann í samtali við Eyjafréttir í vikunni.

Þar gagnrýndi hann breytingar á aflaverðmætum til grundvallar veiðigjalds hér á landi skyldu miða við uppboðsverð í Noregi.

taka tölur í öðrum löndum og færa á Ísland. Við erum með kerfi hér þar sem veiðar og vinnsla eru á sömu hendi. Það hefur verið okkar gæfa, og skilað sér í mikið af fiski er unnið hér en mun stærri hluti er fluttur úr landi óunninn t.d. í Noregi. Þar er fiskvinnslan illa stödd og mun minna fjárfest þar í vinnslum. Ef vinnslan á borga sig og fyrirtækin fjárfesta í þeim gefur það auga leið þær fjárfestingar verða skila góðri afkomu.

Það er ekkert mat gert á því hvaða áhrif þetta hefur. Stærstur hluti hækkunarinnar er greiddur af fyrirtækjum úti á landi og það mun hafa áhrif og veikja m.a. fiskvinnsluna. Draga úr fjárfestingum og hugsanlega fer meira óunnið úr landi, það minnkar bæði skattspor og útsvar sveitarfélaga, sagði hann.

Nafnalisti

  • Einar Sigurðssonfyrrverandi forstjóri fyrirtækisins sem lét af stöfum um mitt ár 2015

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 224 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 91,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,76.