Endurskoða ekki innviðagjaldið

Ritstjórn mbl.is

2025-03-29 10:55

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ekki kemur til þess innviðagjald sem leggst á farþega skemmtiferðaskipa sem koma hingað til lands verði endurskoðað, þrátt fyrir óskir fulltrúa útgerða skemmtiferðaskipanna þar um.

Þetta staðfestir Sigurður Jökull Ólafsson, formaður Cruise Iceland, í samtali við Morgunblaðið en samtökunum barst tilkynning þessa efnis frá atvinnuvegaráðherra í vikunni.

Cruise Iceland eru samtök hafna á Íslandi og þeirra fyrirtækja sem þjónusta skipin hér.

Fulltrúar skipafélaganna funduðu með atvinnuvegaráðherra fyrir mánuði þar sem þeir óskuðu þess gjaldið yrði ekki lagt á strax af fullum þunga en því þess í stað þrepaskipt, sem gæfi skipafélögunum tíma til aðlögunar, en á það var ekki hlustað.

er fyrsta skipið komið til landsins og farþegarnir búnir borga fargjaldið fyrir löngu og munu skipafélögin því sjálf bera kostnaðinn af innviðagjaldinu í ár og á næsta ári, hluta, af fullum þunga, segir Sigurður Jökull.

Lýsa yfir gífurlegum vonbrigðum

Gjaldið sem nemur 2.500 krónum leggst á hvern farþega á sólarhring, en skipin eru að jafnaði 57 daga við landið í senn. Segir Sigurður Jökull Norwegian Cruise Line, sem er með tvö skip í reglulegum ferðum hingað til lands, þurfi greiða gjald fyrir farþegana úr eigin vasa sem nemi á bilinu 400500 milljónum króna í ár.

Skipafélögin lýsa yfir gífurlegum vonbrigðum með þessa niðurstöðu. Þau væntu þess ríkisstjórn myndi vera með meiri fyrirsjáanleika og skynsemi í verkum sínum, en það er ekki svo. Því miður, segir hann.

Nánar lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, laugardag.

Nafnalisti

  • Cruise Iceland
  • Norwegian Cruise Linebandarískt skipafélag með höfuðstöðvar í Miami
  • Sigurður Jökull Ólafssonmarkaðsstjóri Faxaflóahafna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 260 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,60.