Stefna að opnun ofbeldismóttöku fyrir börn

Erla Hlynsdóttir

2025-03-31 17:26

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fyrsta skref í mótun framtíðarsýnar í heilbrigðisþjónustu við börn sem búa við ofbeldi er setja á fót einingu á Landspítala sem veitir börnum sem eru þolendur hvers kyns ofbeldis viðeigandi heilbrigðisþjónustu án tafar. Þjónustan verður þverfagleg og veitt af heilbrigðisstarfsmönnum með sérþekkingu á málefnum barna.

Í desember síðastliðnum, 2024, var Landspítala falið hefja undirbúning opnunar slíkrar einingar en heilbrigðisráðuneytið lagði 13 milljónir króna til undirbúningsins. Landspítali hefur skilað verkáætlun og lokinni rannsókn og greiningu, mótun, vinnustofu, prófun á móttöku, árangursmati og endurskoðun er gert ráð fyrir innleiðingartillaga ofbeldismóttöku fyrir börn líti dagsins ljós í janúar 2026.

Þetta kemur fram í fyrstu stöðuskýrslu um innleiðingu aðgerða sem sérstakur aðgerðahópur vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum hefur skilað af sér. Aðgerðunum er ætlað sporna við þróun í átt auknu ofbeldi, auka forvarnarstarf og leiða saman fjölbreytta þjónustu- og viðbragðsaðila í samstilltu átaki gegn vaxandi ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi.

Auka forvarnir og bæta lífsgæði

Alls voru samþykktar 25 aðgerðir til þess sporna gegn ofbeldi meðal barna og gegn börnum. Við mótun aðgerða var meðal annars horft til þess í gildi væri framkvæmdaáætlun í barnavernd 20232027 auk þess stýrihópur um málefni barna með fjölþættan vanda hafði unnið skýrslu með tillögum úrræðum. Ein af þessum aðgerðum er mótun á framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu við börn sem búa við ofbeldi.

Þar sem fjallað er um þá aðgerð í skýrslunni segir rannsóknir sýni oft skortir sameiginlegan skilning heilbrigðisstarfsmanna og heildarsýn á viðbrögð heilbrigðiskerfisins við ofbeldi og vanrækslu í garð barna. Mótun framtíðarsýnar er því mikilvæg til auka snemmtæka íhlutun heilbrigðiskerfis, auka forvarnir og bæta þannig lífsgæði þeirra barna sem búa við ofbeldi og vanrækslu.

Sérstaklega hugað börnum með fötlun

Framtíðarsýn þarf ekki einungis hafa fjármagn, húsnæði og fagfólk með sérþekkingu á málefnum barna, hún þarf einnig byggja á rannsóknum og gagnreyndum aðferðum þegar kemur veitingu heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis og vanrækslu. Sérstaklega skal hugað börnum með fötlun, segir þar.

Í skýrslunni er sérstaklega farið yfir hvaða mælikvarði er notaður til meta stöðuna á hverri tiltekinni aðgerð, sem og hver er ábyrgðaraðili. Þegar kemur mati á áðurnefndri aðgerð segir í janúar 2026 skuli öll börn sem eru þolendur ofbeldis viðeigandi heilbrigðisþjónustu, sem veitt er meðal annars af sérfræðingum í málefnum barna, svo sem barnalæknum, barnahjúkrunarfræðingum og barnasálfræðingum. Ábyrgðaraðili aðgerðarinnar er heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við Landspítala.

Mæta alvarlegri stöðu hér á landi

Aðgerðahópurinn, sem tók til starfa í september síðastliðnum, er skipaður fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytisins, dómsmálaráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytisins, innviðaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborgar, Barna- og fjölskyldustofu, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, embættis ríkislögreglustjóra, lögregluembætta og Heimilis og skóla.

Aðgerðahópurinn vinnur áfram heildstæðri innleiðingu, forgangsröðun og framkvæmd aðgerða. Vinnsla allra aðgerða er hafin og mótuð hefur verið áætlun fyrir innleiðingu og eftirfylgni til næstu tveggja ára. Með markvissri innleiðingu aðgerða og eftirfylgni er ekki einungis verið mæta þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin hér á landi heldur einnig greina umfang og eðli vandans, og þróa bestu starfshætti fyrir Ísland.

Hér lesa stöðuskýrsluna í heild sinni.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 556 eindir í 24 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 100,0%.
    • Margræðnistuðull var 1,59.