Sérhagsmunir Hönnu Katrínar

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-03-08 17:02

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Viðreisn gefur sig út fyrir vera stjórnmálaafl fólksins sem er of frjálslynt fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Eitt helsta slagorð flokksins er: Almannahagsmunir framar sérhagsmunum.

Þegar allt kemur til alls þá er þetta slagorð orðin tóm. Hagsmunir MS eru framar hagsmunum íslenskra neytenda mati ráðherra ViðreisnarMjólkursamsölunni allt!

Fram hefur komið í fréttum Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra Viðreisnar, þrýsti á samflokksmann sinn, Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra, um láta af áformum sínum um breyta tollflokkun pítsaosts íblönduðum jurtaolíu aftur til fyrra horfs.

Í stuttu máli snýst málið um ost sem er notaður á pítsur. Veitingamenn kjósa ekki nota íslenskan ost þegar kemur pítsugerð og almennri gratíneringu sem er auðvitað helsta kjölfesta íslenskrar matargerðarlistar. Eins og fram kom í umfjöllun Viðskiptablaðsins í síðustu viku kvarta þeir undan ítrekuðum gæðavandamálum íslenska ostsins á borð við myglu, stökkri áferð og litabreytingum.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Til þess bregðast við þessu fóru þeir flytja inn pítsaost sem stenst almennar gæðakröfur og viðmið í manneldismálum. Stjórnkerfið brást við þessu með því breyta tollflokkaskráningu erlenda pítsaostsins þannig hann ber ofurtolla. Evrópusambandið brást réttilega við þessu og setti Ísland á lista yfir ríki sem beita viðskiptahindrunum. Eftirlitsstofnun EFTA hefur málið jafnframt til skoðunar.

Við þessu ætlaði fjármálaráðherra bregðast en varð láta undan þrýstingi atvinnuvegaráðherra. Væntanlega sökum þess almannahagsmunir krefjast þess íslenskum neytendum boðið upp á vöru sem veitingamenn telja óboðlega.

Þarna er Hanna Katrín taka sér stöðu við hlið Framsóknarmanna í baráttu sinni fyrir almannahagsmunum fram yfir sérhagsmuni. Ingibjörg Isaksen sagði um þetta mál á dögunum ef áform fjármálaráðherra um skrá innflutta ostinn í réttan tollflokk hefðu gengið eftir hefðu tugir kúabúa þurft hætta starfsemi.

Týr bendir á hina augljósu staðreynd: Það er eitthvað verulega athugavert við atvinnugrein sem byggir starfsgrundvöll sinn á rangri tollflokkun í trássi við alþjóðasamninga og venjur.

Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út 5. mars 2025.

Nafnalisti

  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Eftirlitsstofnun EFTAESA
  • Hanna KatrínFriðriksson
  • Ingibjörg Isaksenþingmaður Framsóknarflokksins
  • Týrskoðanadálkur sem birtist

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 349 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 95,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,55.